Lykillinn að samfélaginu
Viltu læra íslensku?
Gjaldfrjálst og stafrænt námsefni fyrir fólk sem er að læra íslensku sem annað mál. Efnið er byggt upp sem fræðslupakkar sem tengjast raunverulegum aðstæðum úr daglegu lífi og samfélagi á Íslandi. Hér fyrir neðan getur þú smellt á fræðslupakka og unnið þig áfram í íslensku – skref fyrir skref.
Um efnið okkar
Áfram íslenska – Lykillinn að samfélaginu er gjaldfrjálst, stafrænt og gagnvirkt námsefni fyrir ungmenni og fullorðna, 16 ára og eldri, sem læra íslensku sem annað mál. Hér getur þú kynnt þér uppbyggingu efnisins, faglegan grunn þess, hverjir standa að gerðinni og hvernig tæknin er nýtt.
UM EFNIÐ
Hvað er Áfram íslenska?
Hvað er Áfram íslenska?
Áfram íslenska er stafrænt og gagnvirkt námsefni sem tengir íslenskunám við raunverulegar aðstæður úr daglegu lífi, námi, atvinnulífi og samfélagi á Íslandi.
Efnið er byggt upp sem 160 fræðslupakkar sem birtast í áföngum:
- átta meginþemu,
- fimm viðfangsefni innan hvers þema,
- fjögur færnistig: A1, A2, B1 og B2.
Hver fræðslupakki tekur fyrir afmarkað viðfangsefni, til dæmis kynningu og sjálfsmynd, fjölskyldu, mat og innkaup, heilsu, tækni eða samfélagsþátttöku.
Þú getur unnið með efnið skref fyrir skref, á þínum eigin hraða og óháð staðsetningu.
HÖFUNDAR OG FAGLEG ÁBYRGÐ
Hver gerir efnið?
Hver gerir efnið?
Efnið er samið og þróað af Via Nostra ehf., íslensku fyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð stafræns náms- og fræðsluefnis.
Að gerð efnisins koma meðal annars:
- íslenskufræðingar,
- kennarar með sérþekkingu á íslensku sem öðru máli,
- kennslusérfræðingar í tungumálakennslu,
- sérfræðingar í fjarkennslu og stafrænu námi,
- starfsfólk sem hefur sjálft lært íslensku sem annað mál.
Fjölbreyttur bakgrunnur teymisins hjálpar okkur að sjá efnið frá ólíkum sjónarhornum og taka mið af reynslu og þörfum þeirra sem eru að læra íslensku.
Gervigreind og önnur stafræn verkfæri eru nýtt sem stuðningur við meðal annars glærugerð, leikjavæðingu, verkefnaform og stafræna framsetningu. Faglegt innihald efnisins er ávallt unnið eða yfirfarið af sérfræðingum í íslensku og kennslu.
Efnið er þróað út frá reynslu úr raunverulegri kennslu og er prófað, yfirfarið og endurbætt eftir því sem það birtist.
UNDIRSTAÐA
Á hverju byggir efnið?
Á hverju byggir efnið?
Uppbygging efnisins fylgir Evrópska tungumálarammanum (CEFR), þar sem færnistigin A1–B2 lýsa því hvað einstaklingur getur gert á íslensku á hverju stigi.
Efnið byggir jafnframt á CLIL-nálgun, eða samþættingu tungumáls og viðfangsefnis. Það þýðir að þú lærir íslensku um leið og þú lærir um íslenskt samfélag, daglegt líf, menningu, nám og atvinnulíf.
Áhersla er lögð á fjóra meginþætti tungumálanáms:
- hlustun,
- tal,
- lestur,
- ritun.
Orðaforði og málfræði eru kennd í samhengi við raunverulegar aðstæður en ekki sem einangruð orð eða reglur. Markmiðið er að þú getir nýtt íslenskuna í daglegu lífi, námi, starfi og samskiptum.
ORÐAFORÐI
Orðaforði sem byggist upp stig af stigi
Orðaforði sem byggist upp stig af stigi
Orðaforðinn byggist upp stig af stigi og tekur mið af því hvaða orð þú þarft til daglegra samskipta, náms og þátttöku í samfélaginu.
A1 – grunnorðaforði: megináhersla á algeng hátíðniorð sem eru mikið notuð í daglegum samskiptum (t.d. hundur, stelpa, matur, lesa, vinna). Orðin hafa oft skýra og hlutbundna merkingu og lærast í tengslum við kunnuglegar aðstæður.
A2 – almennur námsorðaforði: orðaforði sem gengur þvert á námsgreinar og samfélagsleg viðfangsefni og er algengari í ritmáli og formlegu máli (t.d. ábyrgð, greining, upprunalegur, umfjöllun, afleiðing, skynsemi). Þetta eru oft huglæg orð sem hjálpa þér að útskýra, bera saman og fjalla nánar um viðfangsefni.
B1 og B2 – sértækur orðaforði og íðorð: sértæk hugtök og íðorð eftir því hvaða viðfangsefni er til umfjöllunar (t.d. ljóstillífun, margföldun, frumvarp, kolefni, segulkraftur). Þessi orð eru bundin við ákveðin fræðasvið, námsgreinar eða samfélagsleg málefni.
Við val og uppbyggingu námsorðaforða er meðal annars stuðst við LÍNO-2, Lista yfir íslenskan námsorðaforða. Orðaforðalögin skarast og orð úr fyrri lögum eru áfram notuð og styrkt eftir því sem færnin eykst.
HLJÓÐ OG ÆFINGAR
Hlustun, framburður og gagnvirkt nám
Hlustun, framburður og gagnvirkt nám
Til að styðja við hlustun og framburð fylgir hljóð orðaforða, textum og verkefnum. Í efninu eru bæði:
- upptökur með mannlegum röddum,
- talgervilshljóð frá Grammatek,
- talgervilshljóð sem unnin eru með Narakeet.
Gagnvirkar framburðaræfingar gera þér kleift að hlusta, taka upp eigin rödd og bera framburðinn saman við fyrirmynd.
Einnig eru í efninu flettispjöld, hlustunarverkefni, gagnvirkar orðaforða- og málfræðiæfingar, leikir og skapandi verkefni, rit- og talverkefni og stutt sjálfsmat.
Sjálfsmatið hjálpar þér að átta þig á hvaða færnistig hentar þér best. Það er byggt á viðurkenndum sjálfsmatsaðferðum í tungumálanámi þar sem færni er metin út frá því hvað þú getur gert á hverju stigi.
NOTKUN OG RÉTTINDI
Gjaldfrjálst og aðgengilegt
Gjaldfrjálst og aðgengilegt
Efnið er gjaldfrjálst og hægt að nýta það bæði til sjálfsnáms og sem stuðningsefni í kennslu. Þú getur:
- unnið sjálfstætt með efnið,
- nýtt það með kennara eða leiðbeinanda,
- notað það í stað- eða fjarkennslu,
- farið aftur í verkefni og æft þig eins oft og þú þarft.
Höfundarréttur að efninu er hjá Via Nostra ehf. nema annað sé tekið fram. Nánari upplýsingar um heimildir og notkunarskilmála fylgja hverju efni eftir því sem við á.
Þróun verkefnisins Áfram íslenska – Lykillinn að samfélaginu er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Ábendingar, athugasemdir og hugmyndir um efnið eru alltaf vel þegnar.
