Þjónusta
Þjónusta
Via Nostra býður upp á sérsniðin námskeið fyrir öll skólastig, faglega ráðgjöf við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í skólastarf, notkun á upplýsingatækni og gervigreind í kennslu sem og ráðgjöf við styrkumsóknir og þróunarverkefni. Smelltu á spjöldin til að sjá nánari upplýsingar um þá þjónustu sem Via Nostra býður upp á.
NÁMSKEIÐ
Fyrir kennara og skólastofnanir
Fyrir kennara og skólastofnanir
Via Nostra býður upp á sérsniðin staðnámskeið fyrir skóla og stofnanir um land allt. Námskeiðin eru skipulögð í samráði við hvern skóla og taka mið af þörfum starfsfólks, markmiðum skólans og þeim áskorunum sem við er að glíma.
Við leggjum áherslu á hagnýta fræðslu, virka þátttöku og verkfæri sem nýtast strax í daglegu starfi. Námskeið geta farið fram á vinnudögum kennara, starfsdögum eða öðrum hentugum tíma. Dæmi um námskeið:
- Vellíðan og seigla kennara
- Skapandi skil
- Námsmat og endurgjöf
- Nemendasjálfstæði
- Fjarnám og sveigjanlegt nám
- Alþjóðlegt samstarf og Erasmus+
HEIMSMARKMIÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Innleiðing í skólastarf
Innleiðing í skólastarf
Við aðstoðum skóla við að innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna á markvissan og hagnýtan hátt. Áherslan er á að tengja markmiðin við daglegt skólastarf, námskrá og verkefni nemenda.
Við bjóðum meðal annars:
- ráðgjöf um innleiðingu heimsmarkmiðanna,
- námskeið fyrir starfsfólk,
- þróun verkefna og kennsluefnis,
- tengingu við Erasmus+ og önnur alþjóðleg samstarfsverkefni.
Markmiðið er að gera sjálfbærni að eðlilegum hluta af skólamenningu og námi.
UPPLÝSINGATÆKNI OG GERVIGREIND Í KENNSLU
Ráðgjöf og námskeið
Ráðgjöf og námskeið
Tæknin þróast hratt og skapar ný tækifæri í kennslu og námi. Via Nostra veitir ráðgjöf og býður upp á námskeið um hvernig nýta má upplýsingatækni og gervigreind á ábyrgan, skapandi og árangursríkan hátt.
Við leggjum m.a. áherslu á:
- upplýsingatækni sem stuðning við nám,
- gervigreind sem stuðning við kennslu,
- skipulag kennslu og námsefnis,
- stafræna hæfni kennara og nemenda.
Markmiðið er að efla sjálfstraust kennara í notkun nýrrar tækni og sýna hvernig hún getur sparað tíma og aukið gæði náms.
STYRKUMSÓKNIR OG ÞRÓUNARVERKEFNI
Umsjón og ráðgjöf
Umsjón og ráðgjöf
Via Nostra hefur víðtæka reynslu af þróunarverkefnum og alþjóðlegu samstarfi. Við veitum ráðgjöf á öllum stigum styrkumsókna, allt frá hugmyndavinnu til framkvæmdar verkefna.
Við bjóðum meðal annars:
- ráðgjöf við Erasmus+ og Nordplus umsóknir,
- þróun verkefnahugmynda,
- gerð verkefnaáætlana og verkáætlana,
- umsóknarskrif,
- stuðning við framkvæmd og miðlun verkefna,
- ráðgjöf um önnur innlend og alþjóðleg styrkjakerfi.
Við vinnum með skólum og stofnunum að því að skapa verkefni sem hafa raunveruleg áhrif á nám, kennslu og skólaþróun.
Nánari upplýsingar
Hægt er að senda fyrirspurnir og fá nánari upplýsingar á netfangið:
