Námskeið

Fjölbreytt

Námskeið

Via Nostra skipuleggur hópferðir/námskeið, sem eru m.a. styrkhæf af endurmenntunarsjóðum Kennarasambands Íslands, fyrir skóla á öllum skólastigum í samstarfi við Verdi ferðaskrifstofu. Verdi sér um að skipuleggja ferðalagið og við hjá Via Nostra sjáum um fræðsluna. Via Nostra skipuleggur einnig opin námskeið í samstarfi við Verdi sem eru styrkhæf af einstaklingsbundnum starfsmenntunarstyrkjum Kennarasambands Íslands. Kynntu þér námskeiðin okkar með því að smella á spjöldin hér fyrir neðan og skoða hvern flokk nánar.

See also
Erasmus Courses
Þjónusta

Auk hópferðanna býður Via Nostra upp á sérsniðin staðnámskeið í skólum um land allt, meðal annars á vinnudögum kennara, þar sem fræðslan er sniðin að þörfum hvers skóla. Við tökum einnig að okkur fjölbreytta faglega ráðgjöf, svo sem innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í skólastarf, notkun upplýsingatækni og gervigreindar í kennslu og ráðgjöf við styrkumsóknir og þróunarverkefni.

Sjá alla þjónustuna okkar