Skapandi skil
Fjögurra daga eflandi færninámskeið fyrir kennara byggt upp á fyrirlestrum, æfingum, verkefnum, umræðum og hugmyndavinnu. Fjögurra daga eflandi færninámskeið fyrir kennara.
Hlutverk kennara og skóla er að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í samfélagi þar sem lýðræðisleg vinnubrögð, samvinna og sköpun er höfð að leiðarljósi. Þekkingarsamfélag nútímans gerir kröfur um að nemendur búi yfir færni til að nýta styrkleika sína, sjálfstæði, ábyrgð og skapandi hugsun í vinnu og daglegu lífi. Gefa þarf nemendum tækifæri til að sýna þekkingu sína á fjölbreyttan og skapandi hátt og þannig koma til móts við fjölbreyttan hóp einstaklinga sem allir hafa mismunandi styrkleika, áhugasvið og hæfni. Kennarar eru í leiðtogahlutverki hvað þetta varðar og þeir eru og verða fyrirmynd nemenda í námi og starfi framtíðarinnar.
Skapandi skil
Fjölbreyttar leiðir til að efla færni og þekkingu kennara
Námskeiðið er m.a. byggt upp með eftirfarandi hætti:
Þekking og verkfæri
Þátttakendur fá þekkingu og verkfæri til að:
Fá hugmyndir að skapandi verkefnum og verkfærum
sem nýtast til kennslu og náms.
Þekkja eigin styrkleika
til að nýta í kennslu og starfi.
Vaxa
og efla færni sína í að sjá tækifæri til vaxtar fyrir sjálfa sig og nemendur.
Miðla áfram
og koma áleiðis til nemenda og samstarfsfélaga hjálplegum bjargráðum þegar kemur að skapandi skilum.
Gott að vita
Þátttakendur þurfa að koma með eigin tölvu og síma. Námskeiðið inniheldur skólaheimsókn í nágrenninu.
Nánari upplýsingar
Hægt er að senda fyrirspurnir og fá nánari upplýsingar á netfangið:
