Skipulag námskeiða

Dæmi um skipulag námskeiða

Fimm dagar – fimm þemu

Nemendasjálfstæði

Hvað felst í námskeiðunum okkar? Hér er dæmi um hvernig fimm daga námskeið fyrir kennara getur verið byggt upp. Hver dagur tekur fjórar klukkustundir og er byggður á fræðslu, samræðum og verklegum æfingum. Heildartími námskeiðsins er 20 klukkustundir. Smelltu á spjöldin til að sjá nánari upplýsingar um hvern dag.

DAGUR 1
Gervigreind
DAGUR 2
Þekking og vitund á eigin hugsun
DAGUR 3
Skapandi skil
DAGUR 4
Valdefling
DAGUR 5
Slökun
DAGUR 1 • 4 KLST.

Gervigreind — Fræðsla

Þekking á gervigreindarverkfærum fyrir kennara og nemendur skapar tækifæri til að nýta tæknina til að gera nám og kennslu meira skapandi og persónulegri.

  • Fræðsla um gervigreind eykur þekkingu kennara á nýjustu tækni og opnar dyr fyrir nýjum og spennandi möguleikum í kennslu og námsefnisgerð.
  • Með fræðslu geta kennarar nýtt gervigreindarverkfæri til að auðvelda undirbúning kennslu og þróa fjölbreytt og áhugavert námsefni.
  • Gervigreindarverkfæri geta gert kennsluna líflegri og meira aðlaðandi fyrir nemendur sem stuðlar að aukinni þátttöku og áhuga á námsefninu.
  • Með því að nýta gervigreind til að sérsníða námsleiðir er hægt að mæta þörfum einstakra nemenda betur og stuðla að betri námsárangri.
  • Fræðsla fyrir kennara um notkun gervigreindar hjálpar þeim að innleiða nýjar kennsluaðferðir sem geta gert námsupplifun nemenda enn betri og árangursríkari.
DAGUR 2 • 4 KLST.

Nemendasjálfstæði — Þekking og vitund á eigin hugsun

Með því að hvetja og efla nemendur til ígrundunar á eigin námi og námsferli og stuðla að akademískum heilindum þeirra aukast líkurnar á að þeir þrói með sér sjálfstæða og gagnrýna hugsun, nái betri árangri og verði ábyrgir og heiðarlegir námsmenn.

  • Að efla þekkingu og vitund á eigin hugsun hjálpar nemendum að skilja hvernig þeir læra best, hverjir eru styrkleikar þeirra og hvernig þeir geta bætt sig.
  • Kennarar geta hvatt til ígrundunar með því að hvetja nemendur til að meta eigin verk, hugsa um hvað gekk vel og hvað mætti betur fara og leita leiða til að bæta sig.
  • Ígrundun í námi eykur vitund nemenda um eigin námstækni og stuðlar að dýpri skilningi á námsefninu.
  • Með því að leggja áherslu á akademísk heilindi eru nemendur hvattir til að vinna heiðarlega, virða verk annarra og þróa sjálfstæða og gagnrýna hugsun.
  • Að stuðla að akademískum heilindum hjálpar nemendum að þroskast sem ábyrgir og heiðarlegir einstaklingar en þeir eiginleikar eru lykilhæfni í námi og framtíðarstarfi.
DAGUR 3 • 4 KLST.

Nemendasjálfstæði — Skapandi skil

Með því að leggja áherslu á skapandi og fjölbreytt vinnubrögð eru nemendur hvattir til að vera frumlegir, leysa vandamál á nýstárlegan hátt og þróa með sér gagnrýna hugsun.

  • Fræðsla og vinna með skapandi skil getur hvatt nemendur til að nálgast námið á fjölbreyttan hátt og beita ímyndunaraflinu til að skapa einstök verkefni.
  • Að ýta undir frumkvæði nemenda með skapandi skilum gerir þeim kleift að taka ábyrgð á eigin námi og finna nýjar leiðir til að tjá þekkingu sína.
  • Fjölbreytni í vinnubrögðum og skilum stuðlar að dýpri skilningi á námsefninu þar sem nemendur fá tækifæri til að kanna mismunandi aðferðir og nálganir.
  • Kennarar geta stutt við skapandi vinnu með því að bjóða upp á opnar spurningar og verkefni sem leyfa margskonar svör og niðurstöður.
  • Skapandi skil geta aukið áhuga og þátttöku nemenda í náminu, þar sem þeir fá að beita styrkleikum sínum og áhugasviðum í verkefnavinnu.
DAGUR 4 • 4 KLST.

Nemendasjálfstæði — Valdefling

Fræðsla og umræður um valdeflingu og sjálfsrækt getur hjálpað bæði kennurum og nemendum að auka vitund sína, bæta lífsgæði og skapa jákvætt og styðjandi umhverfi.

  • Tengsl andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar heilsu eru sterk þar sem heilbrigð sál, góð félagsleg tengsl og líkamleg vellíðan stuðla að heildrænni vellíðan.
  • Sjálfsþekking og sjálfsefling eru lykilatriði í að þroska persónulega hæfni, bæði fyrir kennara og fyrir nemendur og hjálpa til við að takast á við áskoranir í lífi og starfi.
  • Streita getur haft neikvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu en þekking á streitustjórnun og slökunaraðferðum getur bætt lífsgæði.
  • Að rækta gleði, þakklæti, velvild og góðvild getur stuðlað að jákvæðari lífsviðhorfum og betri félagslegum tengslum.
  • Kvíði og depurð eru algengar tilfinningar sem geta haft áhrif á daglegt líf en fræðsla og stuðningur geta hjálpað við að takast á við þær.
  • Tengslamyndun og samskipti eru grunnstoðir í bæði einkalífinu og á vinnustaðnum og góð samskiptahæfni stuðlar að betra samstarfi og skilningi.
  • Í skólastofunni er mikilvægt að skapa umhverfi þar sem nemendur geta tjáð sig frjálslega og upplifað öryggi til að stuðla að góðum námsárangri og vellíðan.
DAGUR 5 • 4 KLST.

Nemendasjálfstæði — Slökun

Að innleiða slökun í daglega rútínu, bæði í skólastofunni og heima, getur skapað rólegra og jákvæðara umhverfi fyrir alla.

  • Slökun hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu með því að draga úr streitu og bæta almenna vellíðan.
  • Til að slökun skili árangri er mikilvægt að finna aðferð sem hentar okkur persónulega og við njótum að framkvæma.
  • Með því að læra og æfa okkur í slökunaraðferðum getum við hjálpað okkur sjálfum, sem og nemendum okkar, að kúpla okkur út úr daglegu amstri.
  • Regluleg slökun stuðlar að betri einbeitingu, aukinni orku og bættri líðan sem getur leitt til bætts náms- og starfsárangurs.
Dæmi um skipulag námskeiða

Fjórir dagar – fjögur þemu

Styrkur og vellíðan

Námskeiðin geta einnig verið styttri eða lengri eftir þörfum hópsins. Hér er dæmi um uppbyggingu fjögurra daga námskeiðs í styrk og vellíðan.

DAGUR 1 • 5 KLST.

Kynning og hreyfing

Fyrsti dagurinn hefst á kynningu þar sem hópurinn kynnist, fer yfir dagskrá námskeiðsins og leggur grunn að góðu samstarfi. Eftir hádegi er sjónum beint að hreyfingu og jákvæðum áhrifum hennar á líkamlega og andlega heilsu.

  • Dagurinn byrjar á kynningu þar sem við kynnumst hvert öðru, förum yfir markmið og uppbyggingu námskeiðsins og sköpum notalegan og öruggan hóp.
  • Hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu og er ein einfaldasta leiðin til að auka vellíðan í amstri dagsins.
  • Mikilvægt er að finna hreyfingu sem hentar hverjum og einum og sem við höfum raunverulega gaman af, því þá er líklegra að hún haldist í daglegu lífi.
  • Hreyfing þarf ekki að snúast um keppni; hún má fyrst og fremst vera skemmtileg og verður oft enn ánægjulegri þegar fleiri taka þátt.
  • Við lærum og æfum okkur í að nýta hreyfingu til að kúpla okkur út úr vinnunni og hlaða batteríin.
DAGUR 2 • 5 KLST.

Sjálfsþekking og útivist

Á öðrum degi er unnið með jákvæða uppbyggingu, jóga, hugleiðslu, núvitund og þakklætisæfingar í hópum. Áhersla er lögð á tengsl andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar heilsu og eftir hádegi er haldið út í útivist.

  • Í hópavinnu er unnið með jákvæða uppbyggingu, jóga, hugleiðslu, núvitundar- og þakklætisæfingar sem efla vellíðan og innri ró.
  • Tengsl andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar heilsu eru sterk og saman mynda þessir þættir heildræna vellíðan.
  • Sjálfsþekking og sjálfsefling eru lykilatriði, bæði fyrir okkur sjálf og nemendur okkar, og hjálpa okkur að takast á við áskoranir í lífi og starfi.
  • Útivist hefur jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu og gefur okkur tækifæri til að endurnæra okkur í náttúrunni.
  • Eins og með hreyfinguna skiptir máli að finna útivist sem hentar okkur og er skemmtileg – og hún er oft enn betri í góðum félagsskap.
DAGUR 3 • 5 KLST.

Streita og slökun

Þriðji dagurinn heldur áfram með jákvæða uppbyggingu og núvitund og beinir sjónum að streitu, gleði, þakklæti, velvild og góðvild – í einkalífi, á vinnustað og í skólastofunni. Eftir hádegi er unnið með slökun.

  • Áfram er unnið með jákvæða uppbyggingu, jóga, hugleiðslu og þakklætisæfingar í hópum sem styrkja jákvætt hugarfar.
  • Streita er skoðuð ásamt gleði, þakklæti, velvild og góðvild, bæði í einkalífinu, á vinnustaðnum og í skólastofunni.
  • Að rækta þakklæti og góðvild getur stuðlað að jákvæðari lífsviðhorfum og betri tengslum við aðra.
  • Slökun hefur jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu og dregur úr álagi hversdagsins.
  • Við finnum og æfum slökunaraðferð sem hentar okkur og hjálpar okkur að kúpla okkur út úr vinnunni.
DAGUR 4 • 5 KLST.

Tilfinningar og tengsl

Á lokadeginum er unnið með kvíða og depurð, tengslamyndun og samskipti – í einkalífi, á vinnustað og í skólastofunni. Deginum lýkur með menningarferð eða hreyfingu og sameiginlegri kveðjustund.

  • Áfram er byggt á jákvæðri uppbyggingu, jóga, hugleiðslu og þakklætisæfingum í hópum.
  • Kvíði og depurð eru algengar tilfinningar sem geta haft áhrif á daglegt líf, og fræðsla og stuðningur geta hjálpað okkur að takast á við þær.
  • Tengslamyndun og góð samskipti eru grunnstoðir bæði í einkalífinu og á vinnustaðnum og stuðla að betra samstarfi og skilningi.
  • Í skólastofunni skiptir máli að skapa öruggt umhverfi þar sem nemendur geta tjáð sig frjálslega, sem eflir bæði líðan og námsárangur.
  • Námskeiðinu lýkur með menningarferð eða hreyfingu og notalegri kveðjustund.

Gott að vita

Hér eru aðeins að finna hugmyndir og dæmi um skipulag námskeiða. Innihald og uppbygging er aðlöguð að þörfum hvers skóla eða hóps. Við tökum vel á móti öllum hugmyndum og séróskum!

Nánari upplýsingar

Hægt er að senda fyrirspurnir og fá nánari upplýsingar á netfangið:

courses.vianostra@gmail.com