Styrkur og vellíðan

Fjögurra daga eflandi færninámskeið fyrir kennara byggt upp á hreyfingu, jóga, fræðslu, jákvæðri uppbyggingu og núvitund. Fjögurra daga eflandi færninámskeið fyrir kennara.

Styrkur og vellíðan

Líkamlegir, andlegir og félagslegir þættir hafa áhrif á heilsu okkar. Vellíðan, hamingja og jákvæðar tilfinningar hafa líka áhrif á heilsu okkar. Það er því mikilvægt að huga að öllum þessum þáttum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að hægt er að auka vellíðan og lífsánægju með ýmsum aðferðum. Námskeiðinu er ætlað að efla kennara og færni þeirra til að takast á við ýmsa erfiðleika sem mæta þeim á lífsleiðinni, s.s. streitu, álag og áföll, og auka þannig hæfni þeirra til að taka atburðum lífsins á jákvæðan máta, hvort sem það er í starfi eða einkalífi, og þekkja eigin takmörk áður en það verður of seint.

Þættir sem efla vellíðan

Rannsóknir hafa sýnt fram á að hægt er að auka vellíðan og lífsánægju með ýmsum aðferðum:

Hreyfing

Það er vel þekkt að hreyfing hefur jákvæð áhrif bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu. Þá er nauðsynlegt að finna hreyfingu sem hentar okkur og við höfum gaman af.

Tengslamyndun og samskipti

Tengslamyndun og ræktun samskipta við annað fólk hefur jákvæð áhrif á líðan okkar og þar með heilsu, hvort sem um er að ræða fjölskyldu, vini eða vinnufélaga.

Velvild og góðvild

Velvild og góðvild í eigin garð og annarra eykur andlega vellíðan okkar. Mikilvægt er að sýna sjálfum sér og öðrum hlýju og skilning í stað dómhörku.

Þakklæti

Þakklæti er grundvallarþáttur í því að ná og viðhalda vellíðan okkar. Til eru ýmsar þakklætisæfingar og öpp í síma sem leggja áherslu á þennan þátt.

Núvitund

Núvitund getur hjálpað okkur að vera meðvitaðri og njóta augnabliksins betur. Til eru ýmsar núvitundaræfingar sem hægt er að gera í amstri dagsins og gefa okkur aftur betri yfirsýn, styrk og ró.

Sjálfsþekking

Að þekkja styrkleika sína og takmarkanir getur aukið orku, sátt og starfsánægju. Þá er mikilvægt að nýta það sem við erum góð í, biðja um aðstoð og kunna að segja nei.

Gleði

Að gera hluti sem gleðja okkur og veita okkur ánægju skiptir einnig miklu máli. Við þurfum því að þekkja hvað það er sem veitir okkur raunverulega gleði og efla það jákvæða í lífi okkar.

Fjölbreyttar leiðir til að efla heilsu og vellíðan

Námskeiðið er m.a. byggt upp með eftirfarandi hætti:

Hreyfing
Jóga
Núvitund
Fræðsla
Jákvæð uppbygging
Þakklætisæfingar

Þekking og verkfæri

Þátttakendur fá þekkingu og verkfæri til að:

Skapa jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Læra aðferðir til að ná betra jafnvægi á milli starfs og daglegs lífs.

Þekkja og nýta eigin styrkleika

Þekkja eigin styrkleika og veikleika og kenna nemendum að gera slíkt hið sama.

Hafa trú á eigin getu

Efla færni sína í að sjá tækifæri til vaxtar fyrir sjálfan sig og nemendur.

Miðla bjargráðum áfram

Koma áleiðis til nemenda og samstarfsfélaga hjálplegum bjargráðum þegar kemur að andlegri vellíðan.

Gott að vita

Þátttakendur þurfa að mæta í þægilegum fötum sem auðvelda hreyfingu og jóga. Mælt er með að taka með eigin jógadýnu ef hún er til staðar.

Nánari upplýsingar

Hægt er að senda fyrirspurnir og fá nánari upplýsingar á netfangið:

courses.vianostra@gmail.com