Upplýsingatækni í skólastarfi
Fjögurra daga eflandi færninámskeið fyrir kennara byggt upp á fyrirlestrum, verklegum æfingum, verkefnavinnu, umræðum og hugmyndavinnu. Fjögurra daga eflandi færninámskeið fyrir kennara.
Notkun á upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu þarf að taka mið af hröðum breytingum á tækninni og á því hvernig nemendur tileinka sér hana. Nauðsynlegt er að gefa kennurum tækifæri til að kynnast nýjum verkfærum og vera sjálfbjarga í eigin upplýsingaleit og endurmenntun. Kennarar eru leiðtogar og fyrirmyndir nemenda í námi og starfi framtíðarinnar.
Fjölbreyttar leiðir til að efla færni og þekkingu kennara
Námskeiðið er m.a. byggt upp með eftirfarandi hætti:
Þekking og verkfæri
Á námskeiðinu munu þátttakendur:
Læra og kynnast verkfærum
Kynning á hinum ýmsu upplýsingatækni-verkfærum sem nýtast í kennslu.
Læra að bjarga sér
Leita að upplýsingum og afla sér þekkingar á verkfærum nútíðar og framtíðar.
Kynnast skapandi leiðum
Fá hugmyndir að skapandi leiðum til að nýta upplýsingatækni í kennslu og námi.
Þekkja eigin styrkleika
Læra að þekkja og nýta eigin styrkleika í kennslu og starfi.
Öðlast tækifæri til vaxtar
Efla færni í að sjá tækifæri til vaxtar fyrir sjálfan sig og nemendur.
Fá færni í að miðla til samstarfsfólks
Koma áleiðis til nemenda og samstarfsfélaga hjálplegum bjargráðum.
Gott að vita
Þátttakendur þurfa að koma með eigin tölvu og síma. Námskeiðið inniheldur skólaheimsókn í nágrenninu.
Nánari upplýsingar
Hægt er að senda fyrirspurnir og fá nánari upplýsingar á netfangð:
