Væntanleg námskeið

Yfirlit

Væntanleg námskeið

Hér má sjá námskeið sem eru í undirbúningi hjá Via Nostra. Nánari upplýsingar um tímasetningar og skráningu verða birtar þegar nær dregur.

Leiðin að meiri hamingju og vellíðan

Í undirbúningi fyrir Tenerife í júní 2027 – birt með fyrirvara um breytingar.

Námskeiðinu er ætlað að efla kennara og færni þeirra til að takast á við ýmsa erfiðleika sem mæta þeim á lífsleiðinni, til dæmis streitu, álag og áföll, og auka þannig mátt þeirra til að taka atburðum lífsins á jákvæðan máta, hvort sem það er í starfi eða einkalífi, og þekkja eigin takmörk áður en það verður of seint.

Lengd

5 dagar

Kennsla

4 klst. á dag (09:00–13:00)

Markhópur

Kennarar eða annað fullorðið fólk sem vill efla vellíðan, seiglu og lífsgæði.

Þekking og verkfæri

Þátttakandinn fær þekkingu og verkfæri til að:

Skapa jafnvægi milli vinnu og einkalífs

Læra aðferðir til að ná betra jafnvægi á milli starfs og daglegs lífs.

Þekkja eigin styrkleika og veikleika

Öðlast betri sjálfsþekkingu og skýrari mynd af eigin styrkleikum og veikleikum.

Nýta eigin styrkleika

Nýta styrkleika sína markvisst í starfi og einkalífi.

Trúa á eigin getu

Efla sjálfstraust og trú á eigin getu.

Sjá tækifæri til vaxtar

Efla færni sína í að sjá tækifæri til vaxtar fyrir sjálfan sig og nemendur.

Miðla bjargráðum áfram

Koma áleiðis til nemenda og samstarfsfélaga hjálplegum bjargráðum þegar kemur að andlegri vellíðan.

Dagskrá námskeiðsins

Námskeiðið er fimm dagar og hver dagur hefur sitt þema:

1Dagur 1

Hvað skapar raunverulega hamingju?

Hamingja er færni sem hægt er að þjálfa

Fyrsti dagurinn snýst um að skoða hvað hamingja er samkvæmt rannsóknum og hvernig hugsanir, tilfinningar og daglegar venjur móta líðan okkar. Þátttakendur kynnast jákvæðri sálfræði, hamingjuefnum heilans (dópamíni, serótóníni, oxýtósíni og endorfínum) og því hvernig hægt er að hafa áhrif á eigin vellíðan með litlum breytingum í daglegu lífi. Einnig verður rætt um hvernig hamingja hefur áhrif á líkamlega og andlega heilsu.

Verkefni

  • Hamingjumæling
  • Kortlagning daglegra venja
  • Hamingjudagbók
2Dagur 2

Þakklæti, gleði og jákvætt hugarfar

Að sjá það góða í lífinu

Á öðrum degi er lögð áhersla á hvernig þakklæti og meðvituð athygli á því sem gengur vel geta aukið lífsánægju. Farið verður yfir rannsóknir um þakklæti og þátttakendur prófa fjölbreyttar æfingar sem auðvelt er að innleiða í daglegt líf. Einnig verður unnið með gleði, tilgang og hvernig við getum skapað fleiri augnablik sem fylla okkur orku.

Verkefni

  • Þrír góðir hlutir
  • Þakklætisbréf
  • Gleðikort
  • Hvað gefur mér orku?
3Dagur 3

Streita, núvitund og jafnvægi

Að finna ró í annríkinu

Þriðji dagurinn fjallar um hvernig streita hefur áhrif á líkama og huga og hvernig hægt er að draga úr henni með einföldum aðferðum. Farið verður yfir núvitund, öndunaræfingar, slökun, hreyfingu og tímastjórnun. Þátttakendur skoða eigin streituvalda og vinna að persónulegri áætlun um betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Verkefni

  • Streitugreining
  • Núvitundarganga
  • Öndunaræfingar
  • Orkujafnvægi vikunnar
4Dagur 4

Sjálfsvelvild, tengsl og styrkleikar

Vertu þín eigin besta vinkona

Á fjórða degi er unnið með sjálfsmynd, sjálfsvelvild og tengsl við annað fólk. Þátttakendur skoða eigin styrkleika og hvernig þeir geta nýtt þá betur í starfi og einkalífi. Einnig verður rætt um mikilvægi góðvildar, tengslamyndunar og þess að setja heilbrigð mörk.

Verkefni

  • VIA-styrkleikapróf eða sambærileg æfing
  • Bréf til framtíðarsjálfsins
  • Sjálfsmildi í verki
  • Æfingar í að segja „nei“
5Dagur 5

Hamingjuborð

Hamingja til betra lífs byrjar í dag

Lokadagurinn sameinar allt sem þátttakendur hafa lært. Hver og einn býr til sitt eigið „Hamingjuborð“ – persónulega áætlun með litlum daglegum venjum sem stuðla að meiri hamingju og vellíðan. Áhersla er lögð á raunhæf markmið, sjálfbærar breytingar og hvernig hægt er að halda áfram eftir námskeiðið.

Verkefni

  • Hamingjuborð
  • 30 daga áskorun
  • Samantekt og kynning

Kennsluaðferðir

Á hverjum degi er blandað saman:

Stuttir fyrirlestrar
Umræður
Einstaklings- og hópverkefni
Núvitundar- og slökunar­æfingar
Léttar hreyfingar
Mark­þjálfunar­spurningar
Dagbókar­skrif og sjálfs­ígrundun

Gott að vita

Námskeiðið er í undirbúningi fyrir Tenerife í júní 2027 og er birt með fyrirvara um breytingar.

Nánari upplýsingar

Hægt er að senda fyrirspurnir og fá nánari upplýsingar á netfangið:

courses.vianostra@gmail.com